Auka hita í Vesturbæjarlaug (barnalaug)
Vesturbæjarlaugin er stolt okkar sem búum í vesturbænum en hana er ekki hægt að stunda að ráði með börn vegna kulda í barnalauginni nema rétt yfir sumarmánuðina. Með skilrúmi sem sett var upp nýlega lagaðist þetta örlítið en hitinn mætti vera meiri. Barnafjölskyldur í vesturbænum sækja þess í stað í sundlaug Seltjarnarness.
Ég er einmitt ein af þeim sem hef keypt árskort í Seltjarnarneslaug vegna setlaugarinnar þar. Ég bý hins vegar nær Vesturbæjarlauginni og myndi kaupa næsta árskort þar ef boðið væri upp á setlaug með volgu vatni.
Kuldinn í barnalaug vesturbæjar er ekki börnum bjóðandi. Við reyndum að vera í lauginni um daginn en gáfumst upp vegna kulda. Ég þekki engan sem fer með börnin sín þangað útaf kuldanum. Það fara allir í neslaugina eða bara eitthvað annað, sem er sorglegt.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation