Frisbígolfvöllur í Laugardal

Frisbígolfvöllur í Laugardal

Setja upp 9 körfu frisbígolfvöll á túninu fyrir ofan gömlu þvottalaugarnar og færa þannig bæði líf á þetta svæði en einnig að bjóða íbúum hverfisins upp á ókeypis afþreyingu. Frisbígolf er einfaldur leikur þar sem frisbídiskum er kastað í sérhannaðar körfur og er markmiðið að far í sem fæstum köstum. Þessi leikur hentar öllum aldri og er mjög fjölskylduvæn afþreying. Mjög góð reynsla er af Klambratúni en sá völlur var settur upp fyrir rúmum tveimur árum og hefur alveg slegið í gegn.

Points

Ég tel að almenningur ætti að styðja við nýjar hugmyndir sem auka fjölbreytni í afþreyingu og hvetur fólk til hreyfingu og útivistar. Mjög ódýrt er að setja upp völl, hann fellur vel að umhverfinu og þarf lítið viðhald auk þess að færa líf á þessu grænu svæði. Frisbígolf truflar lítið aðra starfsemi enda spretta vellir víða upp í nágrannalöndum okkur en í Svíþjóð eru nú komnir 130 vellir og Finnlandi yfir 230 vellir sem flestir eru settir upp í almenningsgörðum.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information