Mikil umferðarteppa getur skapast á háannatímum á þessu svæði. Strætó hefur stoppistöð á þessum stað og er því mikil umferð bæði gangandi og akandi vegfarenda á öllum aldri um þessar slóðir. Ég tel að auka mætti öryggi og auka flæði hverskyns umferðar ef sett væru undirgöng eða brú yfir Hringbraut, t.d. SA við Bjarkargötu.
Auðveldar og eykur öryggi akandi og gangandi vegfarenda.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation