Háskólasamfélag í Vatnsmýrinni.
Landspítalinn verði byggður upp á gamla varnarsvæðinu í Keflavík. Borgarspítalinn verði aðalspítali Reykjavíkur enda er hann mun meira miðsvæðis en við Hringbraut. Allar byggingar Landspítalans verði notaðar fyrir háskólana í nágrenninu. T.d. sem stúdentagarðar, rannsóknastofur og kennslustofur. Þetta mun leiða til þess að flestir háskólanemar geta labbað í skólann og umferð því stórminnka. Flugvöllur Reykjavíkur verði í Keflavík og lögð verði járnbraut og hraðbraut. ( sjá nánar aðra hugmynd )
Þessar hugmyndir eiga að vera saman en 500 stafa takmarkið leyfði það ekki. Landspítalinn til Keflavíkur,Háskólasamfélag í Vatnsmýrinni og Samgöngur milli Reykjavíkur og Keflavíkur.
Ekki nógu lýsandi titill
Gleymdi dálitlu
Nálægð Landspítalans við Háskóla Íslands gerir nemum HÍ kleift að stunda sitt nám og rannsóknir í grennd við spítalann. Sömuleiðis er hún gagnleg starfsfólki landspítalans til rannsókna, kennslu og jafnvel aukins náms samhliða störfum sínum á spítalanum. Miklar samgöngur eru t.d. á milli Læknagarðs og Landspítalans við Hingbraut varðandi verklega- og bóklega kennslu, sýnaflutninga og samnýtingu á ýmsum tækjum. Að hafa þessi nátengdu samfélög hlið við hlið er ekkert nema kostur -á báða bóga.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation