Það þekkja flestir foreldrar að þurfa að skipta börnum á milli sín þegar farið er í sund. Það getur verið flókið að vera einn með lítið barn í klefanum. Það væri því alger snilld að bjóða upp á fjölskylduklefa. Þar gæti öll fjölskyldan farið saman í klefa og foreldrar þannig hjálpast að með börnin. Hver sundlaug gæti t.d. verið með 4-5 fjölskylduklefa sem hægt væri að nota samtímis. Skápar fyrir föt væru fleiri og því gætu hæglega verið 15-20 fjölskyldur á sama tíma í lauginni en notað klefana.
Það myndi klárlega auðvelda barnafjölskyldum að geta notað svona fjölskylduklefa. Foreldrar gætu þá hjálapst að með börnin í stað þess að þurfa að deila þeim á milli sín. Auk þess getur, í sumum tilfellum, verið viðkvæmt að fara í klefa sem tilheyrir hinu kyninu og myndi þessi lausn algerlega taka á því máli. Ég skora á Reykjavíkurborg að útfæra þess hugmynd enn frekar og auka þannig þjónustu við fjölskyldur.
100% ég komst ekki í sund með strákinn minn eftir að hann varð 6 ára og þar til hann treysti sér einn í klefa með fullt af körlum. Það voru mörg ár.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation