Nýja fína gufubaðið (sem nú er kannske ekki alveg nýtt lengur) er þannig hannað að þar er mikið bergmál. Svo mikið reyndar að illmögulegt er að ræða saman eftir að inn er komið. Þetta þarf að bæta.
Regluleg sundiðkun og gufuböð auka bæði líkamlegt og andlegt heilbrigði. Það síðarnefnda þó einkum ef fólk getur rætt sama um landsins gagn og nauðsynjar. Margendurteknar ábendingar um þetta til starfsfólks sundlaugarinnar hefur ekki skilað árangri.
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7021
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation