Byggja upp aðstöðu fyrir sjósport og sjóböð í Grafarvogi austan brúar. Útbúa aðstöðu fyrir veiðiáhugamenn í neðri hluta vogsins. Hreinsa og dýpka voginn, mögulega með stíflu. Í hlíðinni að sunnanverðu þarf að lagfæra gangstíga og setja á þá bundið slitlag. Klippa og snyrta trjágróður, hreinsa lækjarfarvegi og almennt taka til í gróðri. Tína rusl. Af hverju notum við ekki þetta fallega svæði meira en raun ber vitni.
Þessi hluti hverfisins er bæði ósnyrtilegur í dag og lítið nýttur til útivistar þrátt fyrir að vera eitt fallegasta svæði frá náttúrunnar hendi sem fyrirfinnst í borginni. Þessu þarf að breyta á næstu árum með því að lagfæra, snyrta og byggja upp aðstöðu.
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7974
Styð heilshugar allar hugmyndir er lúta að því að gera þetta svæði fallegra og aðgengilegra fyrir Grafarvogsbúa og landsmenn alla
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation